Bílamálun og/eða réttingar

Vegna nýlegrar sölu á 2 verkstæðum hefur myndast hópur áhugasamra aðila til kaupa á bílamálun sér eða með bílaréttingarbúnaði. Ekki verra að starfsemin sé í eigin húsnæði. Ef þú hefur slíka starfsemi þá endilega hafðu samband.

Rafvöruverslun

Aðili sem í dag er með rafvöruverslun hefur áhuga á að kaupa svipaðan rekstur og eða umboð

Auglýsingagerð og prentmiðlun

Skráningarnúmer: KFSLFÓ0202

Kompaní fyrirtækjaráðgjöf er með á skrá aðila sem óska eftir fyrirtæki á sviðum auglýsinga og prentunar þar sem á meðal annars er starfað við grafíska hönnun, umbrot, myndvinnslu og/eða litaprentun.

Prentun, hönnun, auglýsingagerð

Kompaní fyrirtækjasala er með á skrá fjölda aðila sem hafa áhuga á að kaupa fyrirtæki í heild eða hluta, og/eða sameinast fyrirtækjum sem starfa í prentun, (grafískri)hönnun eða auglýsingagerð. KFSLFÓ0103

Fiskvinnsla

Vegna áhuga sem myndaðist í kringum söluferli á fiskvinnslu sköpuðust mikil tengsl við ýmsa aðila sem allir óska eftir litlum fiskvinnslum, á svæðinu Þorlákshöfn og út á Reykjanes. Sumir þessara aðila eru með sölusamninga erlendis Sumir aðilanna hafa áhuga á að kaupa félög í heild en aðrir hafa áhuga á að koma inn í reksturinn sem starfandi meðeigendur. KFSFSPEM18