Pixlar ehf og InnFoto ehf - Lýsing
Pixlar ehf og InnFoto ehf eru tvö vel rekin íslensk fyrirtæki á sviði ljósmynda prentunar, stafrænna vinnslu ljósmynda og skapandi lausna varðandi uppsetningu og framsetningu ljósmynda. Pixlar ehf var stofnað 2003 og hefur alla tíð verið til húsa í bláu húsunum í Skeifunni. Núverandi eigendur festu kaup á fyrirtækinu árið 2016 og hafa á þeim tíma eflt það mikið ásamt þvi að stofna InnFoto ehf árið 2020 sem sér um innflutning vara tengdum ljósmyndum. Fyrirtækin hafa starfað náið saman síðustu ár eru í dag bæði staðsett í sama húsnæði og mynda nú sterka heild sem sækir sífellt í aukinn vöxt í stafrænum lausnum og miðlun.
Til sölu er öll starfsemi beggja fyrirtækja í einum heildarpakka.
Fyrirtækin
Pixlar ehf
Stofnað: 2003 Sérsvið: grafísk hönnun, stafræn prentun á pappír og strigaefni, viðgerðir á ljósmyndum, framköllun á filmum, sölu á filmum frá kodak, Fuji og fl , sölu á myndarömmum og albúmum ásamt nýjum vöruflokkum sem eru myndapúsl og álmyndir
- Viðskiptavinahópur: Fyrirtæki, stofnanir, atvinnuljósmyndarar, og einstaklingar
- Styrkleikar:
- Gríðalegt vöruúrval bæði í búð og í vefsölu
- Stuttur afgreiðslutími og fyrirmyndar þjónusta
- Mikil prentgæði
- Lausnarmiðaðir verkferlar varðandi hönnun og uppsetningu fyrir viðskiptavin á vef
InnFoto ehf
- Stofnað: 2020
- Sérsvið: Innflutningur og sala vara tengdum ljósmyndum svo sem rammar, karton, ljósmyndaalbúm, ljósmyndapappír, strigaefni til áprentunar, filmur og efni til framköllunar á filmum,
- Viðskiptavinahópur: Ljósmyndavöru verslanir, gjafavöru búðir,Ljósmyndarar.
Samlegðaráhrif
Pixlar og InnFoto vinna saman þar sem Pixlar ehf skynja þörf á markaði og InnFoto ehf sér um að flytja inn það sem þarf
Af hverju að kaupa?
Sterk viðskiptasambönd
Vel þekkt vörumerki á markaðnum
Stöðug tekjumyndun
Fyrsta flokks tækjabúnaður og aðstaða
Möguleiki á frekari vexti innan skapandi greina og stafrænnar þjónustu
Töluleg gögn (fáanleg við beiðni)
Tækifæri til að eignast tvö vaxandi fyrirtæki með samverkandi rekstur og sterkri markaðsstöðu á Íslandi.
Allar nánari upplýsingar eru hjá Guðlaugi Magnússyni í síma 8211000 eða í tölvupósti gudlaugur@kompani.is
Tilboð óskast
Fréttir, fróðleikur og ný fyrirtæki til sölu