Fasteignafélag í 101 Reykjavík - Lýsing
Fasteignafélag í 101 Reykjavík – 7 leigueiningar
7 leigueiningar, þar af 6 íbúðir sem eru um 50 fm að stærð og ein 29 fm að stærð í nýju fjölbýli í miðbæ Reykjavíkur, Samtals 321,4 fm að stærð. Gríðarlega eftirsóttar íbúðir í útleigu.
Allar íbúðir eru með sér inngangi. Frágangur er ákaflega vandaður, svartar innréttingar, parket á gólfum og baðherbergi flísalögð í hólf og gólf. Eitt húsfélag er í þessum tveim stigagöngum sem íbúðirnar eru í en félagið á rúmlega 40% af heildareigninni.
Leigusamningar eru allir uppsegjanlegir með 3 mánaða fyrirvara.
Leigutekjur í dag nema um 1,8 mkr en „raun“ leigutekjur eru yfir 2 mkr á mánuði og rekstrarkostnaður er um 186 þús á mánuði.
Félagið er til sölu í heild en einnig má skoða að selja einstaka íbúð.
315.000.000 kr.
Fréttir, fróðleikur og ný fyrirtæki til sölu